flugfréttir
„Airbus A380 verður enn í framleiðslu árið 2030“
Tölvugerð mynd af Airbus A380plus sem Airbus kynnti á flugsýningunni í París í júní
Þrátt fyrir dræmar sölu með Airbus A380 þá telur Airbus að stór markaður sé enn fyrir risaþotuna og verði hún framleidd ennþá eftir 10 ár og jafnvel mun lengur en það.
Þetta sagði Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus, við hátíðlega athöfn er hundraðasta
Airbus A380 risaþotan var afhent til Emirates.
Enders segir að Airbus sé að vinna hörðum höndum að því að tryggja það að Airbus A380 verði
enn framleidd, allt til ársins 2030, og jafnvel lengur en það.
Enders tekur fram að A380plus uppfærslan sé nú í fullri þróun sem mun gera risaþotuna enn
hagkvæmari með breytingum og bættu loftflæðisstreymis, stærri vænglingum og nýju farþegarými.
Frá afhendingu á hundruðustu Airbus A380 þotunni til Emirates
„Við vinnum hart að því að þóknast viðskiptavinum okkar - ekki bara Emirates - líka öðrum
flugfélögum er kemur að Airbus A380 og við teljum að margir góður hlutir eigi eftir að gerast með A380 á næstunni“, segir Enders.
Enders segir að stærsti markaðurinn fyrir A380 sé Miðausturlönd en hann sér fram á að
Asía eigi eftir að koma sterk inn þar sem þörf er fyrir stærri þotur þar í ljósi þess að mikil þrengsli eru að skapast á mörgum flugvöllum í álfunni.
Þá segir Enders að enn gæti verið möguleiki á að selja Airbus A380 til Norður-Ameríku
þrátt fyrir að ekkert amerískt flugfélag hafi pantað risaþotuna frá því hún kom á markaðinn
fyrir áratug síðan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.