flugfréttir
Ætla að koma LTU aftur á loft
- 1.850 fyrrverandi starfsmanna Air Berlin ætla að stofna nýtt flugfélag
Lockheed TriStar breiðþota LTU
Í dag eru 10 dagar liðnir frá því að þýska flugfélagið Air Berlin hætti starfsemi sinni en fyrrverandi starfsmenn félagsins, og sérstaklega þeir sem störfuðu áður hjá LTU, eru þegar farnir að ræða um næstu skref og er draumurinn að stofna nýtt flugfélag.
Á lokaðri grúppu á Facebook hafa skapast fjörugar umræður meðal fyrrverandi
starfsmanna Air Berlin um þann möguleika að endurlífga flugfélagið LTU.
Viðbrögðin hafa verið gríðarleg á facebook-síðunni - „Við þurfum annað flugfélag sem hefur hjarta
og metnað“, segir einn meðlimurinn á grúppunni sem telur 1.800 manns og er rætt
um að koma LTU aftur í loftið.
LTU hætti rekstri árið 2007 eftir að Air Berlin tók yfir rekstur þess
LTU var stór þýskt flugfélag sem var stofnað árið 1955 sem Lufttransport Union en Air Berlin
keypti félagið árið 2007 sem hætti endanlega starfsemi sinni árið 2011 en LTU flaug meðal
annars til Íslands árið 2006.
Búið að hafa samband við fjárfesta
Í lýsingu á hópnum á Facebook stendur meðal annars: „Tilgangur hópsins er að athuga
raunverulegan grundvöll fyrir því að stofna nýtt og áreiðanlegt flugfélag“.
Sven Scholten, stofnandi hópsins, segir of snemmt til að koma með yfirlýsingu um áform hópsins en tekur fram að mikil alvara sé í hópnum og mun fara fram fundur í næstu viku.
Hópurinn hefur komið upp með nafnið LTU neo fyrir hið nýja flugfélag
„Það er greinilegt að við höfum það sem til þarf til þess að reka flugfélag. Við höfum flugrekstrarleyfi
sem er núna frosið eins og er“, segir Scholten sem bendir á að mikil undirbúningsvinna þarf
að eiga sér stað ef raunin verður sú að nýtt flugfélag verður stofnað.
Meðal annars þarf að skrá einkaleyfið fyrir nafninu LTU aftur, tryggja heimild og lendingarpláss, hefja sölu á farmiðum en nánari upplýsingar um áform hópsins verður gerð opinber á næstu dögu.
Búið er að hafa samband við fjárfesta líkt og fyrrverandi eigendur LTU, milljónamæringinn Rudolf Wöhrl sem gerði meðal annars tilboð í Air Berlin og þá er búið að hafa
samband við flugráðgjafa og yfirmenn Air Berlin.
Fram kemur að áhersla verði lögð á koma í veg fyrir einokun frá Lufthansa og Eurowings
sem á eftir að aukast til muna ef ekkert verður að gert í kjölfar gjaldþrotsins.
Draumur eða raunhæf hugmynd?
Ekki eru þó allir fyrrverandi starfsmenn Air Berlin sem hafa trú á að hópnum eigi
eftir að takast ætlunarverk sitt en forsvarsmenn hópsins stefna á að nýtt LTU verði orðið
að veruleika eftir 3 ár.
Michael Hövel, ráðgjafi hjá InAvia Aviation, sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir flugfélög og flugvelli, segir þetta ekki vera svo galna hugmynd og tekur
fram að það þurfi a.m.k. þrjár þotur við stofnun nýs flugfélags til að reksturinn eigi möguleika
á að ganga fyrst um sinn - og fimm þotur sé enn betri kostur.
Hövel segir að ef hópur sem telur 1.850 meðlimi, sem hefur sambönd og getur fengið fjárfesta
með sér í lið og aðila sem búa yfir þekkingu í rekstri flugfélags, þá sé ekkert sem stoppar það
að láta drauminn verða að veruleika þrátt fyrir að mikil vinna sé framundan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.