flugfréttir
Munu ekki banna KLM að fljúga um rússneska lofthelgi
- AirBridgeCargo fær að snúa aftur til Schiphol
Flugvélar KLM Royal Dutch Airlines á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines hefur náð að koma sér undan því að enda á bannlista hjá rússneskum flugmálayfirvöldum.
Rússar hótuðu Hollendingum að þeir myndu loka lofthelginni fyrir flugfélögum frá Hollandi
í kjölfar aðgerða Schiphol-flugvallarins í Amsterdam sem ætlar að takmarka flugferðir á vegum fraktflugfélaga
um völlinn vegna plássleysis.
Til stóð að afturkalla lendingarpláss hjá rússneska fraktflugfélaginu AirBridgeCargo á Schiphol
sem neyddist til þess að færa starfsemi sína yfir á Liege-flugvöllinn í Belgíu.
Eftir tveggja daga samningaviðræður við Rússa hafa flugmálayfirvöld í Hollandi náð samkomulagi
um að leyfa AirBridgeCargo að halda áfram óskertri starfsemi á Schiphol-flugvelli.
Ef Rússar hefðu lokað fyrir flug hollenskra flugvéla um rússneska lofthelgi hefði það haft mikil
áhrif á KLM sem flýgur til fjölda áfangastaða í Asíu en þær flugleiðir liggja að mestu leyti um rússneska lofthelgi.
AirBridgeCargo segir að félagið muni taka upp fraktflug að nýju um Schiphol-flugvöllinn á næstu vikum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.