flugfréttir
Korean Air íhugar að panta fleiri Dreamliner-þotur
Dreamliner-þota Korean Air í lendingu í Madríd á Spáni
Korean Air ætlar sér að leggja inn nýja pöntun í Dreamliner-þoturnar og nota fleiri slíkar vélar til að leysa af hólmi eldri Boeing 777-200 þotur.
Walter Cho, forstjóri Korean Air, segir að elstu Boeing 777-200 þoturnar séu komnar til ára
sinna og er verið að skoða möguleika á að panta annað hvort Boeing 787-9 eða Boeing 787-10.
Korean Air hefur fjórtán Boeing 777-200ER þotur með meðalaldur upp á 14,6 ár en elsta
Boeing 777 þota félagsins er yfir 20 ára gömul.
Korean Air hefur nú þegar fjórar Boeing 787-9 þotur í flotanum og eru sex vélar væntanlegar á næstunni en félagið hefur kauprétt á tíu Dreamliner-þotum til viðbótar.
Heildarflugfloti Korean Air telur 174 flugvélar og á félagið von á 86 þotum til viðbótar frá Airbus, Boeing og Bombardier.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.