flugfréttir
Monarch missir rétt sinn á að koma lendingarplássum í verð
Flugvélar Monarch Airlines á flugvellinum í Manchester
Hið gjaldþrota flugfélag Monarch Airlines hefur misst rétt sinn til þess að selja lendingarpláss sín fyir sumarið 2018 eftir úrskurð dómara.
Stjórn Monarch Airlines tilkynnti í seinasta mánuði að félagið gæti losað um 8,3 milljarða króna
með sölu á afgreiðsluplássum sem til stóð að selja til að greiða skuldir en dómari hefur tilkynnt
félaginu að búið sé að ráðstafa plássunum og verður þeim útlhlutað til flugfélaga án aðkomu
flugfélagsins.
Lögfræðingar Monarch sögðu í október að lendingarpláss félagsins væru verðmætustu „eignir“
félagsins til að koma í verð svo hægt væri að greiða kröfuhöfum.
Wizz Air og easyJet eru meðal þeirra flugfélaga sem hafa lýst yfir áhuga á að kaupa plássin
sem Monarch hafði til umráða en um er að ræða 39 lendingarpláss á London Gatwick, Manchester,
Birmingham, Luton og á Leeds-Bradford flugvelli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.