flugfréttir
Rússneskt flugfélag mun fljúga til Íslands
- S7 Airlines mun fljúga til Keflavíkur frá Moskvu
S7 Airlines mun fljúga til Íslands með Boeing 737-800 þotum
Rússneskt flugfélag hefur boðað komu sína til Íslands en flugfélagið S7 Airlines ætlar sér að hefja beint flug til Keflavíkur frá Moskvu næsta sumar og er þetta í fyrsta sinn sem rússneskt flugfélag mun fljúga til landsins í reglubundnu áætlunarflugi.
S7 Airlines mun fljúga hingað frá Domodedovo-flugvellinum í Moskvu og mun félagið fljúga
hingað einu sinni í viku frá 30. júní fram til 26. ágúst.
Farið verður í loftið frá Moskvu klukkan 20:05 og er lent í Keflavík klukkan 22:15 og brottför
frá Keflavík er klukkan 23:20 og lent í Mosvku kl. 07:05 daginn eftir.
Félagið mun fljúga hingað til lands á laugardögum og verður Boeing 737-800 þota notuð til flugsins.
S7 Airlines er annað stærsta flugfélag Rússlands á eftir Aeroflot en félagið var áður það fjórða stærsta
en skaust upp listann eftir gjaldþrot Transaero.
Félagið hefur höfuðstöðvar sínar í borginni Ob í Novosibirsk-héraði og hefur félagið 76 þotur í flota
sínum og eru áfangastaðir félagsins 146 talsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.