flugfréttir

Þriggja ára stúlka sú eina sem lifði af flugslys í Rússlandi

- Sex létu lífið er Let L-410 flugvél fórst í skógi í aðflugi

16. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:36

Let L-410 flugvél frá Khabarovsk Airlines

Sex manns létu lífið er lítil farþegaflugvél af gerðinni Let L-410 brotlenti í lendingu í Rússlandi í gær.

Vélin, sem var í eigu flugfélagsins Khabarovsk Airlines, var á leið frá borginni Khabarovsk til Nikolayevsk-on-Amur en gat ekki lent þar sökum veðurs.

Þess í stað var ákveðið að fljúga til Indiga-flugvallarins en ekki var heldur hægt að lenda þar vegna veðurskilyrða og var því næst haldið til borgarinnar Nelkan sem var næsti áfangastaðurinn í fluginu á eftir Nikolayevsk-on-Amur.

Vélin var í aðflugi að flugvellinum í Nelkan þegar vélin flaug á tré í um 2 kílómetra fjarlægð frá brautarendanum og brotlenti því næst í skóginum.

Um borð í vélinni voru tveir flugmenn og fimm farþegar og létu allir lífið nema þriggja ára gömul stúlka sem lifði slysið af en hún er þó alvarlega slösuð.

Flak vélarinnar í skóginum skammt frá flugvellinum i Nelkan

Björgunarlið fann flak vélarinnar í skóginum en enginn eldur hafði komið upp í flakinu. Stúlkunni var bjargað frá borði og var hún flutt á sjúkrahús.

Að sögn flugvallarins í Nelkan voru veðurskilyrði góð er vélin fórst, gott skyggni, úrkomulaust og vindur undir 10 hnútum en -25°C frost.

Rannsóknarnefnd flugslysa í austurhéröðum Rússlands hafa hafið rannsókn á slysinu og voru sýni tekin úr eldsneyti úr þeim geymum þar sem vélin tók seinast eldsneyti og þá hefur verið farið yfir flugáætlunargerðina sem gerð var fyrir flugið.

Let L-410 er tveggja hreyfla farþegaflugvél, framleidd í Tékklandi en vélin er í sama stærðarflokki og svipar til Dornier Do-228 og tekur hún mest 19 farþega.

Khabarovsk Airlines er rússneskt flugfélag í eigu ríkisins en félagið var stofnað árið 2004 og hefur það fjórar Let L-410 flugvélar í flota sínum og fimm Antonov An-26 vélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga