flugfréttir

Airbus fær pöntun í 430 þotur - Stærsta pöntun í sögu flugsins

- Fara í flota fjögurra flugfélaga

17. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:40

John Leahy, sölustjóri Airbus, ásamt yfirmönnum frá Airbus og Bill Franke, stofnanda Indigo Partners.

Allt bendir til þess að risapöntun sem Airbus fékk á flugsýningunni í Dubai sé stærsta pöntun í sögu flugsins en bandaríska fyrirtækið Indigo Partners lagði inn pöntun í hvorki meira né minna en 430 farþegaþotur.

Pöntunin samanstendur af þotum úr Airbus A320-fjölskyldunni en Indigo Partners pantaði í fyrradag 273 þotur af gerðinni Airbus A320neo og 157 eintök af Airbus A321neo.

Pöntunin er metin á 49.5 milljarða bandaríkjadali sem samsvarar 5 þúsund eitthundrað og tíu milljörðum króna.

Fara í flota fjögurra flugfélaga

Farþegaþoturnar 430 munu fara í flota Wizz Air, Frontier Airlines, flugfélagsins JetSmart í Chile og til mexíkóska flugfélagsins Volaris.

146 þotur munu fara í flota Wizz Air sem mun fá 72 Airbus A320neo þotur og 74 Airbus A321neo þotur.

134 þotur fara til Frontier Airlines sem mun fá afhentar 100 vélar af gerðinni Airbus A320neo og þrjátíu og fjórar A321neo vélar.

Volaris mun fá 80 þotur; 46 af gerðinni A320neo og 34 af gerðinni Airbus A321neo og þá munu 70 þotur fara í flota JetSmart en það félag mun fá 56 Airbus A320neo vélar og fjórtán A321neo.

Fyrstu þoturnar verða afhentar árið 2021 en flestar afhendingarnar munu eiga sér stað frá árinu 2025 til 2026 og verður stór hluti vélanna smíðaður í verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama.

Vita ekki til að stærri pöntun hafi verið gerð

„Við höfum verið að skoða þetta og við sjáum ekki að einhver hafi lagt inn eins stóra pöntun áður“, segir Bill Franke stofnandi Indigo Partners sem hefur stofnað nokkur lágfargjaldaflugfélög í heiminum í gegnum tíðina.

Indigo Partners er fjárfestingarfélag í einkaeigu sem á hlut í Frontier Airlines, JetSmart, Volaris, Wizz Air og Enerjet.

Pöntunin er mikil bylting fyrir Airbus sem hefur átt á brattann að sækja gegn Boeing er kemur að pöntunum á þessu ári en Airbus var komið með pantanir í 288 þotur frá áramótum áður en flugsýningin í Dubai hófst á meðan Boeing var komið með pantanir í 605 þotur.

Stærsta pöntunin - en ekki sú verðmætasta

Pöntun Indigo Partners er sennilega sú stærsta í sögunni sem flugvélaframleiðandi hefur fengið á einu bretti en á þessum tímapunkti er um samkomulag að ræða og verður pöntunin staðfest síðar.

American Airlines pantaði 460 þotur á einu bretti árið 2011 en Airbus og Boeing skiptu þeirri pöntun á milli sín.

Þá pantaði indverska flugfélagið IndiGo, sem tengist ekki Indigo Partners fyrirtækinu á neinn hátt, 250 þotur árið 2015.

Pöntunin er hinsvegar ekki sú verðmætasta í sögunni því árið 2013 pantaði Emirates 150 þotur af gerðinni Boeing 777X og fimmtíu Airbus A380 risaþotur að verðmæti 10.220 milljarða króna.

Frá undirritun pöntunarinnar sl. miðvikudag á flugsýningunni í Dubai







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga