flugfréttir
Norðmenn fá fyrstu AW101 björgunarþyrluna afhenta
AW101 björgunarþyrlan frá AgustaWestland
Norðmenn hafa tekið við sinni fyrstu AW101 björgunarþyrlu frá AgustaWestland af þeim sextán sem pantaðar voru á sínum tíma.
Fyrsta þyrlan lagði af stað í afhendingarflugið frá Leonardo-verksmiðjunum í bænum Yeovil
á Suður-Englandi til til Sola í Noregi þann 17. nóvember.
Þyrlan mun gangast undir nokkrar tilraunir á tækjabúnaði áður en norski flugherinn mun
hefja notkun hennar á næsta ári.
Næstu fimmtán AW101 þyrlur verða svo afhentar til ársins 2020 og verða þær staðsettar
á sex bækistöðvum víða um Noreg.
Hver þyrla kostar um 2 milljarða króna og verðmæti kaupanna er um 136 milljarðar króna
og er í því innifalin þjálfun, þjónusta og möguleiki á sex þyrlum til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.