flugfréttir

Nýtt kerfi í A350-1000 mun virkja sjálfvirka neyðarlækkun

- Með einum hnappi lækkar vélin niður í örugga flughæð

22. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:36

Airbus A350-1000 þotan fékk í gær vottun frá EASA og FAA

Airbus hefur komið fyrir nýju kerfi í Airbus A350-1000 þotunni sem aðstoðar flugmenn við skyndilega lækkun niður í örugga flughæð í neyðartilfellum.

Alain de Zotti, yfirverkfræðingur yfir Airbus A350 deildinni, segir að A350-1000 þotan muni með auðveldum hætti víkja frá af áætlaðri flugleið með snöggum hætti sé kerfið gert virkt og yfirgefið farflugshæð með mun öruggari máta.

Airbus hafði íhugað sambærilegt neyðarlækkunarkerfi árið 2009 sem átti að virkjast sjálfkrafa ef flugmenn svara ekki kalli frá flugumferðarstjórn við aðstæður sem geta komið upp ef þeir missa meðvitund sökum súrefnisskorts og myndi kerfið því láta vélin sjálfkrafa lækka niður í 10.000 feta hæð.

Airbus hefur ekki gefið frá sér ítarlega útskýringu á kerfinu en Zotti segir að kerfið sé virkt með „push and pull“ aðgerð til að koma í veg fyrir að kerfið sé sett í gang fyrir mistök.

Til stendur að koma búnaðinum einnig fyrir í Airbus A350-900 vélinni en fram kemur að hægt er að setja kerfið upp í þeim A350 þotum sem eru nú þegar í umferð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga