flugfréttir
Turkish hefur ekki þörf fyrir Airbus A380 eins og er
Tölvugerð mynd af risaþotunni Airbus A380 í litum Turkish Airlines
Turkish Airlines segist ekki hafa neina þörf til að taka inn risaþotuna Airbus A380 í flotann sinn eins og staðan er í dag.
Bilal Eksi, varaformaður Turkish Airlines, segir að félagið sé samt opið fyrir
því að meta kosti risaþotunnar í framtíðinni en eins og er þá kemur hún ekki til
greina að svo stöddu.
Eksi sagði í nýlegu viðtali að staðan yrði metin þegar nýr risaflugvöllur verður
tekin í notkun í Istanbúl haustið 2018.
Nokkrum sinnum hefur komið upp orðrómur um að Turkish Airlines hafi verið
að íhuga að panta risaþotuna Airbus A380 en fram hefur komið að Ataturk-flugvöllurinn í Istanbúl henti ekki fyrir risaþotuna.
Temel Kotil, þáverandi framkvæmdarstjóri hjá félaginu, sagði árið 2016
að félagið gæti ekki tekið bara eina eða tvær Airbus A380 risaþotur þar sem slíkt
væri mjög óhagkvæmt og væri félagið betur sett með Boeing 777-300ER og Airbus A330.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.