flugfréttir
Fyrsta erlenda pöntunin í Mil Mi-171A2 þyrluna
Mil Mi-171A2 þyrlan
Rússar hafa fengið fyrstu erlendu pöntunina í Mi-171A2 þyrluna sem kemur frá fyrirtækinu Vectra Group á Indlandi sem hefur pantað eina slíka þyrlu.
Andrey Boginsky, framkvæmdarstjóri Russian Helicopters, vonast til að með þessu sé
möguleiki á að fleiri erlendir aðilir leggi inn pöntun í þyrluna sem er nýjasta útgáfan
af Mi-17 þyrlunni.
Mil Mi-17 þyrluna er annars að finna í 73 löndum og hefur hún verið framleidd
í yfir 12.000 eintökum frá árinu 1975 en þyrlan er framleidd í dag á tveimur stöðum
í Rússlandi.
80 mismunandi tegundir af Mi-17 þyrlunni hafa verið smíðuð frá upphafi og
er hægt að breyta henni milli þess að henta til farþegaflugs og fraktflugs.
Vectra Group er fyrirtækjasamsteypa sem starfar í mismunandi rekstri en
býður m.a. upp á þyrluþjónustu, viðhald og viðgerðir á þyrlum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.