flugfréttir

Flugvélaleiga vill stofna sitt eigið risaþotuflugfélag

- Amedeo myndi sjá um flugreksturinn og flugfélög sjá um bókanir

24. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:08

Tölvugerð mynd af Airbus A380 risaþotunni í litum Amedeo flugvélaleigunnar

Flugvélaleiga á Írlandi hefur uppi áform um að blása nýju lífi í risaþotuna Airbus A380 með með nýju fyrirkomulagi þar sem flugvélaleigan sér um flugreksturinn á risaþotunni á meðan flugfélög myndu sjá um að fylla vélin af farþegum.

Það er flugvélaleigan Amedeo sem er nú að skoða þennan möguleika en Amedeo hefur stærsta risaþotuflota af öllum flugvélaleigum heims með tólf Airbus A380 í flota sínum og þá eru tuttugu slíkar til viðbótar á leiðinni sem pantaðar hafa verið.

Mark Lapidus, framkvæmdarstjóri Amedeo, telur að flugiðnaðurinn gæti haft gott af því að prófa að aðskilja rekstur flugvéla og sölu á farmiðum til farþega og þegar kemur að Airbus A380 þá væri Amedeo tilbúið að sjá um rekstur vélarinnar á meðan nokkur flugfélögin myndu sjá um farmiðasöluna.

Amedeo segist ætla að sækja um sitt eigið flugrekstrarleyfi eftir nokkur ár en sérfræðingar í fluginu og nokkur flugfélög hafa lýst því yfir að þau hafi ekki mikla trú á þessu fyrirkomulagi og efast um að það gangi upp.

Með þessu væru hægt að nýta risaþoturnar betur með því að koma þeim farþegum fyrir í eina Airbus A380 risaþotu sem hafa bókað flug frá nokkrum flugfélögum og Amedeo myndi sjá um reksturinn, áhafnir og allt sem viðkemur fluginu sjálfu.

„Sameiginlega farmiðaútgáfa, þar sem farþegar hafa bókað farmiðann hjá einu flugfélagi og flogið með öðru flugfélag, hefur lengi verið til staðar“, segir Lapidus sem bendir á að enn sé ekki búið að finna flugfélög til að leigja af þeim þær 20 risaþotur sem þeir eiga eftir að fá afhentar.

Amedeo hefur þegar átti í viðræðum gistirisann við airbnb.com sem hefur lýst því yfir að fyrirtækið vilji færa sig inn á flugmarkaðinn en samt án þess að þurfa fara í gegnum það skrifræði og þær reglugerðir sem fylgja flugrekstri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga