flugfréttir
Fyrsta breytir fyrstu Boeing 737-800 vélinni í fraktþotu
Tölvugerð mynd af Boeing 737-800BCF í litum West Atlantic
Boeing hefur lokið við að breyta fyrstu Boeing 737NG farþegaþotunni yfir í fraktþotu en vélin verður eftir áramót afhent til sænska fraktflugfélagsins West Atlantic.
Vélinni var breytt í fraktþotu hjá fyrirtækinu Boeing Shanghai Aviation Services í Kína
sem er að hluta til í eigu Boeing.
Vélin mun fá vottun frá flugmálayfirvöldum í desember og er áætlað að afhenda hana til
West Atlantic í febrúar 2018.
Vélinni, sem var breytt, er af gerðinni Boeing 737-800 og var hún framleidd árið 2004 en vélin
hefur verið í flota Ryan International Airlines og hjá Travel Service í Tékklandi sem hafði
hana seinast í notkun.
Þremur öðrum Boeing 737-800 þotum verður á næstunni breytt í fraktvélar fyrir West
Atlantic og verða þær afhentar fyrir árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.