flugfréttir
„Enginn skortur á flugmönnum í flugiðnaðinum“
- Skortur hinsvegar á flugmönnum sem hafa reynslu til að verða flugstjórar
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri Internatinal Airlines Group (IAG), á hádegisverðarfundinum á Írlandi sl. föstudag
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG (International Airlines Group), sem á m.a. British Airways, segir að það sé enginn skortur á flugmönnum í flugiðnaðinn.
Walsh sagði á hádegisverðarfundi á Írlandi að Aer Lingus hafi borist umsóknir frá 3.000 flugmönnum um þær 100 stöður sem félagið auglýsti.
Walsh ræddi vandamálið sem kom upp hjá Ryanair í haust og sagði að ástæðan fyrir
þeim „flugmannaskorti“ hafi verið sá að Ryanair hafði ekki nógu marga flugmenn með
þá reynslu sem til þar svo hægt sé að færa þá upp um stöðu og gera þá að kapteinum.
„Það er fullt af flugmönnum í iðnaðinum, en það eru ekki nógu margir flugmenn sem hafa þá reynslu
sem til þarf til að verða flugstjóri“, segir Walsh sem tók fram að það sé í raun vandamálið.
Walsh sagði að hann myndi ekki óska neinum að ganga í gengum það sem Ryanair hefur
þurft að gera og sagði að Michael O´Leary væri mjög góður stjórnandi og harður
samkeppnisaðili.
„Ég trúi því ekki að þetta hafi verið rekstrarlegt vandamál hjá Ryanair. En þeir hafa lagfært
þetta og náð sínu striki og eiga eftir að verða enn öflugra flugfélag þegar upp er staðið“, segir Walsh.
Walsh tók fram að IAG hafi uppi stór áform fyrir Aer Lingus og sé eitt af því að efla
enn frekar og styrkja leiðarkerfið yfir Atlantshafið en félagi flýgur í dag 13 flugleiðir
frá Írlandi til Norður-Ameríku og verður Seattle nýjasti áfangastaður félagsins.
Aer Lingus mun meðal annars fá átta Airbus A321LR þotur afhentar árið 2019 og telur
Walsh að þær muni brjóta blað í sögu Aer Lingus í fluginu yfir Atlantshafið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.