flugfréttir
Aerolineas Argentinas fær sína fyrstu Boeing 737 MAX þotu
Boeing 737 MAX 8 þota Aerolineas Argentinas
Argentínska flugfélagið Aerolineas Argentinas hefur fengið sína fyrstu Boeing 737 MAX 8 þotu afhenta en vélinni var fyrir helgi flogið frá Seattle til Buenos Aires með viðkomu i Punta Cana á Haíti.
Aerolineas Argentinas áætlar að fljúga fyrsta farþegaflugið með vélinni þann 1. desember
en félagið mun fá aðra Boeing 737 MAX 8 þotu afhenta fyrir lok ársins og þrjár til viðbótar
fram í maí árið 2018.
Félagið á alls von á ellefu 737 MAX 8 vélum og verða vélarnar allar notaðar fyrst um sinn í
innanlandsflugi í Argentínu en einnig stendur til að nota þær í millilandaflugi.
Allar vélarnar eru teknar á leigu í gegnum flugvélaleiguna Aviation Capital Group.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.