flugfréttir
Icelandair mun fljúga á alla leiki Íslands á HM í Rússlandi
Icelandair hefur ákveðið að fljúga á alla þá staði í Rússlandi þar sem Ísland mun mæta til leiks
Icelandair hefur ákveðið að fljúga að minnsta kosti eitt flug til þeirra þriggja borga í Rússlandi þar sem leikir Íslands í riðlakeppninni fara fram.
Ljóst verður 1. desember um hvaða borgir verður að ræða og hverjir leikdagar Íslands verða, en þá verður dregið í riðla keppninnar. Flogið verður frá Íslandi daginn fyrir leik og til baka daginn eftir leik.
„Við fáum mikið af fyrirspurnum um HM og ljóst að fjöldi Íslendinga mun gera sér ferð á keppnina. Eflaust munu margir nýta sér áætlunarflug til borga í Evrópu og taka þaðan flug eða lest á áfangastað, en nú liggur fyrir að Icelandair mun fljúga beint á alla þrjá leiki Íslands í riðlakeppninni“, segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Fljótlega að loknum HM-drættinum 1. desember, þegar leikstaðir og leiktímar liggja fyrir, verður flugið auglýst og sett í sölu. Áhugasamir geta skráð sig á HM síðu Icelandair http://www.icelandair.is/sport/hm2018
Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út og fær ferð fyrir tvo til Rússlands með gistingu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.