flugfréttir
Samtvinnað atvinnuflugnám hjá Flugskóla Íslands hefst í janúar
- Ný leið í námsframboði til atvinnuflugmannsnáms
Atvinnuflugmannsbekkur hjá Flugskóla Íslands
Þann 8. janúar næstkomandi mun bætast við ný leið í námsframboði til atvinnuflugmannsnáms hjá Flugskóla Íslands - Tækniskólanum en skráning hefst í byrjun desember.
Námið heitir ATPL(A) samtvinnað atvinnuflugmannsnám eða ATPL(A) Intergrated nám og byggir á evrópskri reglugerð um flugskírteini. Námið er hugsað fyrir þá einstaklinga sem hafa enga flugreynslu og vilja verða atvinnuflugmenn.
Flugskóli Íslands hefur frá stofnun verið með áfangaskipt nám (modular), sem leiðir til atvinnuflugmannsréttinda, en helstu breytingar eru þær að nemandi mun ekki öðlast neitt skírteini fyrr en við útskrift. Flugtímar eru einnig færri, en nemandi verður þar á móti meira undir leiðsögn flugkennara, sérstaklega í blindflugsnámi.
Breyting í samstarfi við Icelandair í þeirri viðleitni að fjölga atvinnuflugmönnum
Nýverið boðaði Icelandair til nýrrar leiðar, Icelandair Cadet leið, þar sem lögð var áhersla á að Icelandair myndi velja og styðja við bakið á fjármögnun námsins með því að ábyrgjast bankaskuldabréf sem veitt væri til valins nemanda.
Um leið verður það hvati til nemenda um að hefja atvinnuflugnám. Icelandair boðaði þvi samstarf við Flugskóla Íslands í þessum efnum, enda hefur skólinn staðið fyrir flugþjálfun atvinnuflugmanna frá 1998.
Flugskólinn er því með samkomulag við Icelandair um að Flugskóli Íslands verði áfram ein af stoðum fyrirtækisins, í þeirri viðleitni að fjölga útskrifuðum atvinnuflugmönnum til framtíðarstarfa hjá fyrirtækinu.
Nánari upplýsingar um Cadet-nám Icelandair má finna á heimasíðu Icelandair.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.