flugfréttir
Mótmæltu uppsögn flugmanns með því að mæta ekki til vinnu
- Fella þurfti niður yfir 50 flugferðir
Aeromexico þurfti í gær að fella niður yfir 50 flugferðir með litlum fyrirvara
Aeromexico neyddist til þess að fella niður yfir 50 flugferðir í gær eftir að fjöldi flugmanna á vegum Aeromexico Connect mættu ekki til vinnu nánast fyrirvaralaust.
Með þessu voru flugmennirnir að mótmæla uppsögn eins flugmann sem
var rekinn úr starfi sökum ástæðna sem eiga sér langan aðdraganda en fram kemur að það hafi verið vegna slæmrar frammistöðu.
51 flugferð var aflýst frá flugvellinum í Mexíkóborg og þurfti meðal annars
að fella niður flug til Detroit, Orlando, Panamaborgar, Lima, Dallas, Los Angeles
og til New York.
Aeromexico segir að flugmennirnir hafi meðal annars hunsað fyrirmæli
frá félagi mexíkóskra atvinnuflugmanna sem minnti flugmenn á að virða rétt
farþega og voru þeir hvattir til þess að mæta til vinnu þegar fyrirætlanir þeirra
spurðust út.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.