flugfréttir

Textron kynnir nýja flugvél: Cessna SkyCourier

- FedEx pantar 50 eintök af fraktútgáfunni

29. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:36

Tölvugerð mynd af Cessna SkyCourier

Textron Aviation, kynnti í gær Cessna 408 SkyCourier, sem er ný flugvél sem framleidd verður en um er að ræða tveggja hreyfla hævængja flugvél með skrúfuþotuhreyfli.

Vélin var kynnt til leiks ásamt yfirlýsingu um pöntun frá vöruflutningarisanum FedEx sem hefur gert samning um kaup á 50 eintök af Cessna SkyCourier með möguleika á 50 vélum til viðbótar.

Cessna SkyCourier verður bæði framleidd sem fraktflugvél og farþegaflugvél en vélin mun geta tekið 19 farþega á meðan fraktútgáfan getur flogið með um 2,7 tonn af frakt.

Cessna SkyCourier verður í sambærilegum flokki og Twin Otter og Dornier Do 228 vélarnar en vélin mun leysa af hólmi eldri vélar í flota FedEx.

SkyCourier í litum FedEx

Vélin, sem er 16 metrar á lengd, getur flogið á 200 hnúta hraða og hafa flugdrægi upp á allt að 1.667 kílómetra.

Hönnuð í samstarfi við FedEx

SkyCourier var hönnuð í samræði við FedEx sem kom að þróun vélarinnar og mun vöruflutningafélagið nota vélina til að leysa af hólmi eldri fraktvélar af gerðinni Cessna 208 Caravan og ATR 42-300F.

Vélin er sérstaklega hönnuð með einföldu aðgengi í huga fyrir vörur og tekur vélin þrjá stóra fluggáma í staðlaðri stærð en með stórri frakthurð og einföldu áfyllingarkerfi fyrir eldsneyti verður viðsnúningstími mjög fljótur.

SkyCourier mun koma á markað árið 2020

Vélin kemur með föstum hjólabúnaði sem mun takmarka farflugshraða vélarinnar en talið er að það, auk þess sem vélin er ekki jafnþrýstibúin, gæti dregið úr áhuga meðal flugfélaga fyrir farþegaútgáfunni.

Þar af leiðandi verður farþegavélin markaðsett fyrir þróunarlöndin og einnig sem flugvél fyrir sérstakar flugferðir og fyrir verkflug.

SkyCourier mun koma á markað árið 2020

SkyCourier kemur með fjögurra blaða McCauley-skrúfuhreyflum frá Pratt & Whitney með Blackmac skrúfublöðum sem eru gerð úr áli.

Áætlað er að vélin fljúgi sitt fyrsta flug árið 2019 og er stefnt á að FedEx fái fyrsta eintakið árið 2020.

FedEx fær fyrstu Cessna SkyCourier vélina afhenta árið 2020







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga