flugfréttir

Varar við áhættu sem fylgir of löngu flugtaki í kjölfar atviks

- EASA vitnar í atvik þar sem Airbus A340 þota frá Air France átti í hlut

30. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:18

Airbus A340-300 þota Air France í flugtaki

Flugmálayfirvöld í Evrópu hafa sent frá sér yfirlýsingu varðandi öryggismál vegna áhættu sem fylgir því ef flugvél er of lengi að hafa sig á loft í flugtaki við takmarkaðar aðstæður.

Áminningin kemur í kjölfar atviks sem kólumbísk flugmálayfirvöld greindu frá er Airbus A340 breiðþota frá Air France var að hafa sig á loft frá flugvellinum í Bogota í mars á þessu ári.

Vélin var á leið til Parísar en flugtakið var mjög langt þar sem nef vélarinnar var mjög lengi að lyftast upp frá brautinni og hefur EASA varað við þeirri áhættu sem fylgir því ef aðstæður fyrir flugtak eru takmarkaður á sama tíma og afköst viðkomandi flugvélar er alveg upp að mörkum.

EASA vitnar ekki beint í atvikið með Airbus A340 þotu Air France í Bogota en fram kemur að fjögurra hreyfla breiðþota hafi átt í hlut þar sem hún var í flugtaki og var vélin undir lágmarkshæð þegar hún fór yfir þröskuldinn á hinum enda brautarinnar.

EASA tekur fram að sambærileg atvik hafi nokkrum sinnum átt sér stað á sama flugvelli þar sem fjögurra hreyfla breiðþota var í flugtaki.

Flugmálayfirvöld í Evrópu mæla með því að flugrekstraraðilar og þjálfunardeildir flugfélaga gefi því sérstakan gaum hver flugtaksvegalengdin er í fluggögnum og upplýsingum fyrir brottför og meti hvort það sé hætta á því að erfiðlega eigi eftir að láta vélina hafa sig á loft í tæka tíð við slíkar aðstæður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga