flugfréttir
Eric Schulz hjá Rolls-Royce verður sölustjóri Airbus
- Mun taka við af John Leahy
Eric Schulz hefur verið forstjóri yfir flugdeild Rolls-Royce
Eric Schulz, forstjóri yfir hreyfladeild Rolls-Royce, mun taka við af John Leahy sem sölustjóri yfir farþegaþotudeild Airbus.
Schulz mun taka við stöðunni þegar Leahy mun láta af störfum í lok janúar á næsta ári
eftir 23 ár sem sölustjóri hjá Airbus.
„Við erum ánægðir yfir því að fá Eric Schulz yfir til okkar“, sagði Tom Enders, framkvæmdarstjóri
Airbus í skriflegri yfirlýsingu þar sem hann tekur fram að Schulz hafi umfangsmikla
þekkingu í flugiðnaðinum og hreyflum og mikla kunnáttu á rekstri flugfélaga.
Með þessa hæfileika og þekkingu er talið að Eric Schulz verði góður staðgengill John Leahy
sem oft er talinn vera einn besti sölumaður á flugvélum í iðnaðinum.
John Leahy mun hætta sem sölustjóri Airbus eftir áramót
Schulz byrjaði sinn feril árið 1986 er hann hóf störf hjá Aerospatiale-Sogerma en hann hefur
meðal gengt yfirmannastöðu hjá fyrirtækjum á borð við UTA, Air France, Air Liberté, Goodrich,
EADS og nú seinast hjá Rolls-Royce.
Schulz hefur meistaragráðu eftir að hann stundaði nám við vélaverkfræði í háskólanum
í Genf auk þess sem hann lærði flugverkfræði við ESTA Engineering í París.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.