flugfréttir

Guðjón Helgason nýr upplýsingafulltrúi Isavia

1. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:44

Guðjón Helgason tekur við starfi upplýsingafulltrúa Isavia af Guðna Sigurðssyni

Guðjón Helgason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Isavia og hann tekur við starfinu af Guðna Sigurðssyni sem gengt hefur starfinu frá því í maí 2015 en hann hefur ákveðið að hefja nám í háskóla erlendis á næstunni.

Guðjón hefur starfað sem samskiptastjóri Öryrkjabandalags Íslands frá 2016 en hann var áður fréttamaður um langt skeið.

Hann hóf störf á Fréttastofu Ríkisútvarpsins sumarið 2002 og starfaði þar með hléum til ársloka 2004. Þá tók hann við starfi kynningar- og alþjóðafulltrúa hjá Kennaraháskóla Íslands.

Í byrjun árs 2006 tók hann til starfa sem fréttamaður hjá 365 miðlum og vann þá á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi.is og í september 2009 hóf hann störf sem fréttamaður í erlendum fréttum á sameinaðri fréttastofu RÚV.

Guðjón starfaði einnig um skeið sem fréttaritari á Íslandi fyrir alþjóðlegu fréttaveituna Associated Press. Guðjón lauk BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 2002 og meistaranámi í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Essex á Englandi 2005.  

Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia: „Við hjá Isavia hlökkum til að fá Guðjón til starfa en það er ljóst að reynsla hans og þekking úr störfum fréttamanns um langt árabil og nú síðast sem samskiptastjóri hjá Öryrkjabandalaginu mun koma félaginu til góða. Um leið viljum við þakka Guðna Sigurðssyni fyrir góð störf sem upplýsingafulltrúi, en hann hefur sinnt því starfi með miklum sóma síðastliðin ár.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga