flugfréttir

Fyrstu A380 risaþoturnar „of þungar“ fyrir British Airways

- IAG, móðurfélag British Airways, hefur áhuga á allt að sjö notuðum A380

3. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 19:22

Dr. Peters á nokkrar Airbus A380 risaþotur sem hafa verið í leigu hjá Singapore Airlines

Tvísýnt er með hvort að British Airways vilji taka við þeim Airbus A380 risaþotum sem Singapore Airlines mun skila aftur til flugvélaleigunnar Dr. Peters í Þýskalandi á næstunni þrátt fyrir að flugfélagið breska hafi áhuga á að taka inn notaðar risaþotur.

Dr. Peters hefur unnið hörðum höndum að því að finna nýja leigendur að risaþotunum sem Singapore Airlines hefur haft í flota sínum frá árinu 2007.

Christian Mailly hjá flugvélaleigunni þýsku segir að Willie Wash, framkvæmdarstjóri IAG, móðurfélags British Airways auk annarra flugfélaga, hafi lýst því yfir í fyrra að notaðar risaþotur kæmu vel til greina og þá væri einnig möguleiki að hafa þær í flota hinna dótturfélaganna sem eru Iberia og Aer Lingus.

Vandamálið er hinsvegar að þær Airbus A380 risaþotur sem Singapore Airlines er að fara að skila til baka eru mun þyngri en nýjustu risaþoturnar þar sem um er að ræða fyrstu eintökin.

Mailly segir að fyrstu eintökin af nýjum flugvélategundum heilli ekki eins mikið flugfélögin þar sem framleiðendur hafi náð að gera úrbætur á nýjustu eintökunum ef samanborið er við fyrstu eintökin sem framleidd voru.

Einnig eru ýmis önnur atriði sem eru fráhrindandi fyrir flugfélögin við að taka inn fyrstu eintökin sem framleidd voru og á það einnig við fyrstu Dreamliner-þoturnar sem Boeing framleiddi sem voru mun þyngri en vélarnar sem smíðaðar voru í kjölfarið.

Walsh, hjá IAG, segir að áhugi sé fyrir að taka allt að sex til sjö notaðar Airbus A380 risaþotur til viðbótar ef hægt er að semja um gott verð en British Airways hefur í dag tólf A380 risaþotur í flotanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga