flugfréttir
Bretar vilja vera áfram meðlimur að EASA eftir Brexit
Bretar kusu í fyrra um að segja sig úr Evrópusambandinu
Ríkisstjórn Bretlands hefur óskað eftir því að Bretar fái að verða áfram aðili að flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) þrátt fyrir útgöngu Breta úr Evrópusamstarfinu.
Chris Grayling, samgönguráðherra Breta, segir að beiðni hafi verið send til stofnunarinnar
að flugfélög, flugrekstraraðilar og aðrar stofnanir í Bretlandi, sem koma að flugi og flugöryggi, muni
heyra áfram undir EASA.
Talið er að Bretar muni spara um 65 milljarða króna á ári með því að segja skilið við Evrópusambandið en um er að ræða samstarfsslit frá 21 mismunandi stofnunum
sem mun taka í gildi þann 29. mars árið 2019.
Fjölmörg Evrópulönd eru aðilar að EASA þótt þau séu ekki í Evrópusambandinu en með því
hafa þau ekki rétt til að kjósa um ýmiss atriði er varðar flugöryggi.
Einn aðili, sem er kunnugur málinu, segir að viðræður standi yfir varðandi þann möguleika að
Bretlandi verði áfram aðili að EASA og telur hann að það mjög hæpið að Bretar fái synjun við þeirri
beiðni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.