flugfréttir
Japan Airlines stefnir á tvöfaldan hljóðhraða
- Fjárfesta í bandaríska fyrirtækinu Boom Supersonic
Japan Airlines hefur fjárfest fyrir 1 milljarð króna í bandaríska fyrirtækinu Boom Supersonics
Japan Airlines stefnir á hljóðfrátt farþegaflug líkt og British Airways og Air France buðu upp á forðum daga en flugfélagið japanska tilkynnti nýlega að stefnt væri á að fjárfesta fyrir 1 milljarð króna í fyrirtækinu Boom Supersonic.
Boom Supersonic er sprotafyrirtæki í Denver í Colorado sem stofnað var af Blake School sem starfaði
áður sem forritari hjá Amazon.com en frá árinu
2015 hefur fyrirtækið unnið af þróun á hljóðfrárri farþegaþotu sem mun geta náð tvöföldum hljóðhraða.
Boom Supersonic segir að fyrirtækið hafi unnið í samstarfi við Japan Airlines bakvið luktar
dyr í rúmt ár að því að þróa þotu sem gæti náð hraðanum Mach 2.2 og flogið með 55 farþega.
Yoshiharu Ueki, forstjóri Japan Airlines, segir að það sé mikill heiður fyrir flugfélagið að vinna
með Boom og sé stefnan að bjóða farþegum upp á að „spara tíma“ í ferðalögum sínum
með því að stytta flugtímann en á sama tíma að viðhalda öryggi í flugi.
Líkan af XB-1 tilraunaflugvélinni sem mun fjúga fyrsta flugið á næsta ári
Blake School segir það stórt tækifæri að fá að vinna með Japan Airlines að hönnun á áreiðanlegri
flugvél sem mun bjóða upp á byltingarkenndan flughraða fyrir farþega.
Boom Supersonic vinnur nú að því að smíða XB-1 sem verður tilraunaflugvél sem mun fljúga sitt
fyrsta flug á næsta ári en von er á að fyrsta hljóðfráa farþegaþotuflugvélin verði tilbúin
snemma á þriðja áratugnum.
Nánar má lesa um Blake School og fyrirtækið hans í frétt sem birtist á Alltumflug.is í mars árið 2016
Blake School, stofnandi Boom Supersonic
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.