flugfréttir
Fór í aðflug að rangri flugbraut á JFK-flugvelli í New York
- Önnur farþegaþota var á þeirri braut að hefja flugtak
Frá Kennedy-flugvellinum í New York
Litlu munaði að tvær farþegaþotur hefðu farið of nálægt hvor annarri á John. F. Kennedy flugvellinum í New York í gær er mexíkósk farþegaþota, sem var að koma inn til lendingar, stefndi á ranga flugbraut þar sem önnur var að fara hefja flugtak.
Airbus A319 þota frá mexíkóska flugfélaginu Volaris var að koma inn til lendingar á JFK-flugvelli
eftir flug frá Mexíkóborg en í stað þess að lenda á 13L brautinni var vélin komin í aðflug
að 13R sem liggur samsíða.
Á 13R brautinni var hinsvegar farþegaþota frá Delta Connection af gerðinni
Bombardier CRJ900 að hefja flugtak til Boston.
Airbus A319 þotan frá Volaris átti að lenda á 13L en ekki 13R
Flugumferðarstjóri náði naumlega að láta flugvélina frá Delta hætta við flugtak á sama tíma
og hann lét þotuna frá Volaris hætta við aðflugið og fara í fráhvarfsflug (go around).
Á tíðninni hjá turninum mátti heyra flugmann Delta segja: „Það virðist vera flugvél að koma inn á lokastefnu“. Turninn svaraði: „Já, ég sé það. Hættu við flugtakið“.
Flugumferðarstjórinn lét svo flugmennina hjá Volaris hætta við lendingu og fór vélin í annað aðflug og lenti skömmu síðar á réttri flugbraut. Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.