flugfréttir
Malaysian ætlar að hafa risaþoturnar áfram
- Hætta við að stofna sérstakt dótturflugfélag fyrir pílagrímaflug
Airbus A380 risaþotur Malaysia Airlines
Malaysia Airlines hefur tilkynnt að félagið sé hætt við að taka Airbus A380 risaþoturnar úr notkun og ætlar félagið að halda þeim áfram í flotanum í reglubundnu áætlunarflugi.
Félagið hafði áður tilkynnt að til stæði að hætta með risaþoturnar í farþegaflugi og reyndi félagið
m.a. að selja þeir og leigja þær út á sínum tíma en á þessu ári var ákveðið að
koma þeim alfarið í pílagrímaflug.
Nú hefur félagið hinsvegar hætt við þessi áform og verða risaþoturnar áfram notaðar í flugi
til London auk annarra áfangastaða vegna mikillar eftirspurnar eftir flugsætum.
Félagið ætlaði sér að stofna sérstakt dótturfélag fyrir Haiji-flugferðir og koma risaþotunum
úr áætlunarflugi í leiðarkerfinu frá og með mars 2018.
Malaysia Airlines hefur sex Airbus A380 risaþotur í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.