flugfréttir
Draga úr framleiðslunni niður í sex A380 risaþotur á ári
Airbus A380 risaþota Singapore Airlines
Airbus er að skoða þann möguleika að hægja á framleiðsluferlinu á Airbus A380 risaþotunni með því að framleiða aðeins sex eintök á ári en flugvélaframleiðandinn evrópski hefur átt í miklum erfiðleikum með að fá fleiri pantanir í risaþotuna.
Fjórtán Airbus A380 risaþotur hafa verið afhentar á þessu ári sem senn er á enda og er stefnt
á að smíða 12 risaþotur á næsta ári eða eina á mánuði.
Það er meira en helmingi færri risaþotur en þegar mest var þegar Airbus framleiddi 30 risaþotur
á ári en framleiðsluhraðinn hefur minnkað upp á síðustu misseri.
Átta Airbus A380 risaþotur verða smíðaðar árið 2019 og mögulega aðeins sex risaþotur árið 2020
en það veltur þó allt á því hvort að Emirates ætli að leggja inn nýja pöntun í fleiri risaþotur.
Búist var við pöntun frá Emirates í 36 risaþotur á flugsýningunni í Dubai í nóvember en
sú pöntun kom aldrei. Aðilar sem eru kunnugir málinu segja að viðræður milli Emirates
og Airbus standi enn yfir.
Airbus hefur lýst því yfir að sex risaþotur á ári muni ekki valda neinu teljanlegu fjárhagstjóni
fyrir Airbus og myndi það réttlæta að halda framleiðslunni gangandi á meðan engar pantanir berast.
Einnig myndi það auka svigrúm og skapa markað fyrir notaðar A380 risaþotur á meðan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.