flugfréttir
Primera Air pantar tvær Boeing 737 MAX til viðbótar
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 9 í litum Primera Air
Primera Air hefur staðfest pöntun á tveimur Boeing 737 MAX 9 þotum til viðbótar sem bætist við þær átta þotur sem félagið pantaði í vor.
Í maí á þessu ári lagði Primera Air inn pöntun í sextán Boeing 737 MAX 9 þotur; átta frá Boeing
og þá verða aðrar átta teknar á leigu frá flugvélaleigunni Air Lease Corporation með möguleika á fjórum til viðbótar.
Primera Air mun því alls fá 10 eintök af Boeing 737 MAX 9 beint frá Boeing og með þeim vélum
sem verða teknar á leigu er félagið því búið að tryggja sér 18 Boeing 737 MAX þotur.
Primera Air á von á því að fá fyrstu Boeing 737 MAX 9 þoturnar afhentar árið 2019 en vélarnar
verða burðarásinn í fyrirhuguðu flugi Primera Air milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Þá hefur Primera Air einnig tilkynnt um að félagið verði fyrsta flugfélagið í heimi til þess að
fá Boeing 737 MAX 9 afhenta þegar hún kemur á markað árið 2019 en samkvæmt Boeing hingað til hefur Lion Air verið skráð sem það flugfélag sem mun fá fyrsta eintakið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.