flugfréttir
Fyrsta A350-1000 þotan afhent á næstu dögum
A7-ANA er fyrsta Airbus A350-1000 þotan fyrir Qatar Airways sem verður afhent til félagsins á næstu dögum
Fyrsta sölueintakið af Airbus A350-1000 hefur flogið sitt fyrsta flug en það er fyrsta þotan af þessari gerð fyrir Qatar Airways sem um ræðir.
Airbus mun afhenda vélina til Qatar Airways áður en árið 2017 er á enda en sl. mánudag
fór vélin í sitt fyrsta tilraunarflug fyrir afhendingu.
Qatar Airways á von á 37 Airbus A350-1000 þotum en vélin er lengsta útgáfan af Airbus A350
vélunum.
Félagið ætlar sér að hefja áætlunarflug með Airbus A350-1000 þann 15. janúar og verður fyrsta
áætlunarflugið með henni flogið frá Doha til Frankfurt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.