flugfréttir
Gjaldþrot blasir við Niki
- Hafa aflýst öllu flugi frá og með 14. desember
Airbus A320 þota flugfélagsins Niki
Gjaldþrot blasir við austurríska flugfélaginu Niki eftir að Lufthansa lýsti því yfir í dag að félagið væri hætt við yfirtöku á Niki þar sem allt stefnir í að Evrópusambandið sé að fara hafna yfirtökunni á grundvelli samkeppnislaga.
Lufthansa tók yfir rekstri á yfir 80 farþegaþotum úr flota Air Berlin og stóð einnig til að taka yfir rekstur Niki og sameina félagið við dótturfélagið Eurowings.
Niki hefur aflýst öllu flugi frá og með morgundeginum, 14. desember, en flugfélagið austurríska
hefur 30 flugvélar í flota sínum af gerðinni Airbus A320, A321 auk þrettán Boeing 737 véla.
Lufthansa segir að félagið sé hætt við yfirtökuferli á Niki þar sem Evrópusambandið telur að
yfirtakan muni skapa óheiðarlega samkeppni í farþegaflugi til og frá Þýskalandi þar sem
Lufthansa Group hefur nú þegar dótturfélög á borð við Eurowings, Austrian Airlines og
SWISS International Air Lines.
Niki var stofnað árið 2003
Air Berlin hafði lýst því yfir að eina vonin fyrir Niki væri sú að Lufthansa myndi taka yfir
rekstrinum því tilraunir til yfirtöku frá IAG (International Airlines Group) og Thomas Cook
Airlines höfðu farið út um þúfur.
Niki hafði reitt sig á að fá fjárhagsaðstoð upp á 1,2 milljarða króna á viku frá Lufthansa til að halda rekstrinum gangandi eftir að Air Berlin varð gjaldþrota.
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins hefur frest til 21. desember til að ákveða
yfirtökutilboð Lufthansa í Niki.
Flugfélagið Niki var stofnað árið 2003 af milljarðamæringnum og fyrrverandi Formúla 1 kappaksturskappanum, Andreas Nikolaus Lauda, sem
betur er þekktur undir nafninu Niki Lauda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.