flugfréttir
ATR flugvél fórst í flugtaki í norðurhéröðum Kanada
- Allir um borð komust lífs af
Flugslysið átti sér stað klukkan 00:15 í gærkvöldi að íslenskum tíma
Flugslys átti sér stað í gærkvöldi í Kanada er farþegaflugvél af gerðinni ATR 42-300 fórst skömmu eftir flugtak frá bænum Fond-du-Lac, nyrst í Saskatchewan-héraði.
Vélin, sem var frá flugfélaginu West Wind Aviation, var á leið til bæjarins Stony Rapids, þegar slysið
átti sér stað en vélin var í flugtaksklifri og missti hæð með þeim afleiðingum að hún brotlenti
í skóglendi í um eins kílómetra fjarlægð frá flugbrautinni.
22 farþegar voru um borð í vélinni auk þriggja áhafnarmeðlimi og komust allir lífs af en margir
eru slasaðir og eru sumir alvarlega særðir.
Fjölmennt lið sjúkrafluttningsmanna auk lögreglu fór á vettvang og voru margir fluttir
á sjúkrahús og þá mættu sérfræðingar frá rannsóknardeild flugslysa í Kanada á slysstað í morgun.
Vélin sem fórst. C-GWEA
Tildrög slyssins eru enn ókunn en fram kemur að mikil þoka hafi verið á svæðinu er slysið átti
sér stað.
Engar flugveðurupplýsingar eru gefnar upp fyrir flugvöllinn í Fond-du-Lac en næsta veðurstöð
er í Stony Radips, sem er í 75 kílómetra fjarlægð en klukkan 00:15 að íslenskum tíma í gær, þegar
slysið átti sér stað, var 14 kílómetra skyggni, lítilsháttar snjókoma og -19°C stiga frost.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.