flugfréttir
Orðrómur: Delta mun panta 100 Airbus A321neo þotur
Airbus A321 þota Delta Air Lines
Sagt er að Delta Air Lines muni síðar í dag tilkynna um risapöntun í allt að 100 farþegaþotur frá Airbus.
Þetta er haft eftir tveimur aðilum sem eru kunnugir málinu en fram kemur
að Delta Air Lines sé búið að leggja inn pöntun í 100 Airbus A321neo farþegaþotur og
sé stjórn félagsins búin að samþykkja pöntunina.
Slík pöntun er metin á 1.326 milljarða króna samkvæmt listaverði en félagið
fengi að venju mikinn magnafslátt eins og tíðkast hefur þegar nýjar þotur
eru pantaðar.
Delta hafði einnig verið í viðræðum við Boeing vegna kaupa á allt að 100
Boeing 737 MAX 10 þotum og væri pöntunin til Airbus því mikil vonbrigði
fyrir flugvélaframleiðandann bandaríska.
Hvorki Delta né Airbus hafa viljað staðfesta þennan orðróm né tjá sig um málið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.