flugfréttir
Norwegian Air Argentina fær fyrstu þotuna í janúar
Boeing 737-800 þotur Norwegian
Norwegian Air Argentina, nýstofnað dótturfélag Norwegian í Argentínu, mun fá sína fyrstu farþegaþotu afhenta í janúar eftir áramót.
Vélin, sem verður af gerðinni Boeing 737-800, er nú þegar í notkun í áætlunarflugi í Evrópu
en hún verður ein af þeim 10 til 12 þotum sem Norwegian Air Argentina mun byrja með
þegar reksturinn hefst.
Norwegian Air Argentina var stofnað í janúar á þessu ári og fékk félagið flugrekstarleyfi frá yfirvöldum í Argentínu í október.
Fyrsta áætlunarflugið mun hefjast í febrúar en félagið ætlar t.a.m. að hefja flug frá
Buenos Aires til New York og til London Gatwick þann 15. febrúar 2018 með
Dreamliner-þotum en enn er ekki búið að tilkynna hvenær Norwegian Air Argentina mun
hefja innanlandsflug í Argentínu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.