flugfréttir
Azores Airlines fær sína fyrstu Airbus A321neo þotu
Fyrsta Airbus A321neo þota Azores Airlines í lágflugi yfir flugvöllinn í Lissabon sl. föstudag
Azores Airlines, flugfélagið á Asóreyjum, hefur fengið sína fyrstu Airbus A321neo þotu afhenta en félagið pantaði vélarnar í september í fyrra.
Azores Airlines pantaði sex Airbus A321neo þotur og verða hinar fimm afhenta til ársins 2021
en fjórar af þessum þotum verða af langdrægu gerðinni, Airbus A321LR.
Félagið ætlar að fljúga fyrsta áætlunarflugið með Airbus A321neo þann 12. janúar frá
Ponta Delgada til Boston en í mars 2018 mun félagið einnig fljúga A321neo þotunum til
Lissabon og Toronto.
Vélarnar munu koma í stað þeirra Airbus A310 breiðþotna en félagið hefur tvær slíkar í flotanum
sem eru komnar til ára sinna.
Azores Airlines tekur A321neo þoturnar á leigu frá flugvélaleigunni Air Lease Corporation
í Bandaríkjunum.
Azores Airlines hét áður SATA Air Acores en nafni félagsins var breytt í október árið 2015 og var ímynd og merki félagsins breytt umtalsvert.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.