flugfréttir
West Wind kyrrsetur ATR flugvélarnar í kjölfar flugslyss
Flak vélarinnar í skóglendi skammt frá flugvellinum í bænum Fond-du-Lac í Saskatchewan í Kanada
Kanadíska flugfélagið West Wind Aviation hefur kyrrsett allar ATR 42-300 flugvélarnar í flota sínum tímabundið á meðan verið er að rannsaka orsök flugslyss sem átti sér stað í síðustu viku.
Vélin, sem var með 22 farþega og þrjá áhafnarmeðlimi innanborðs, brotlenti
skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í bænum Fond-du-Lac í Saskatchewan
í norðurhéröðum Kanada.
Rannsóknaraðilar hafa sent flugrita og hljóðrita vélarinnar til rannsóknar í Ottawa
þar sem verið er að fara yfir gögnin sem þau geyma.
Allir þeir sem voru um borð komust lífs af en margir urðu fyrir meiðslum og þar
af nokkrir sem slösuðust alvarlega.
Vélin er gjörónýt en hún rann 800 metra eftir jörðunni er hún kom niður í skóglendi og tók
með sér nokkur tré og rifnaði búkurinn vinstra megin.
Meðal þeirra sem koma að rannsókninni er hreyflaframleiðandinn Pratt & Whitney,
flugvélaframleiðandinn ATR og rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi.
22 farþegar voru um borð í vélinni auk þriggja áhafnarmeðlima
Rannsóknaraðilar hafa ekki tjáð sig um hvort að vélin hafi verið afísuð fyrir flugtak
né um aðra þætti sem gátu hafa orsakað slysið.
West Wind Aviation hefur fimm ATR 42-300 flugvélar í flota síum sem hafa verið
kyrrsettar en þá hefur félagið einnig vélar af gerðinni Super King Air, Beechcraft 1900,
Jetstream, Cessna 401, Cessna 402, Cessna 414, Cessna Citation auk fimm de Havilland
Canada DHC-6 Twin Otter flugvéla.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.