flugfréttir

Júmbó-þotan heyrir sögunni til í bandarísku farþegaflugi

- Síðasta flugið með Boeing 747 var flug Delta frá Seoul til Detroit

20. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:44

Eftir áætlunarflug Delta í gær frá Seoul til Detroit þá er ekkert bandarískt flugfélag sem flýgur lengur júmbó-þotunni

Júmbó-þotan heyrir nú sögunni til í farþegaflugi meðal flugfélaga í Bandaríkjunum eftir að Delta Air Lines flaug í gær sitt síðasta áætlunarflug með Boeing 747.

Í dag er ekkert bandarískt flugfélag sem flýgur farþegaflug með þessari flugvélategund sem oft hefur verið kölluð „drottning háloftanna“.

Boeing 747 þjónaði bandarískum farþegum í tæpa hálfa öld eða í næstum 48 ár en það var þann 15. janúar árið 1970 sem Pat Nixon, forsetafrú, gaf fyrstu Boeing 747 þotu Pan Am nafnið „Clipper Young America“ á Dulles-flugvellinum í Washington.

Flugstjórinn Steven Blair Roddy stillir sér upp fyrir
myndatöku á flugvellinum í Seoul fyrir síðasta Boeing
747 flug Delta Air Lines

Vélin flaug fyrsta júmbóþotuflug sögunnar með farþega þann 22. janúar frá New York til London.

Síðasta áætlunarflug Delta Air Lines með Boeing 747 lenti í gær klukkan 17:41 að íslenskum tíma í Detroit eftir 11:26 klukkustunda flug frá Seoul í Suður-Kóreu en í dag tók Airbus A350-900 þotan við keflinu og mun fljúga þessa flugleið héðan í frá.

Delta Air Lines hefur fjórar Boeing 747-400 þotur eftir í flotanum ein ein þeirra hefur frá því á mánudag flogið nokkrar sérstakar kveðjuflugferðir með starfsfólk og boðsgesti frá Detroit til Seattle, til Atlanta og því næst verður í dag flogið til Los Angeles og til Minneapolis.

Þótt að Delta Air Lines hafi verið síðasta bandaríska flugfélagið til að fljúga júmbó-þotunni þá var United Airlines með Boeing 747 lengst í flota sínum en félagið flaug sitt síðasta flug með Boeing 747 í nóvember.

Delta pantaði júmbó-þotuna eins og flest önnur bandarísk flugfélög árið 1967 þegar byrjað var að taka við pöntunum og pantaði félagið upphaflega fyrst aðeins þrjár Boeing 747-100 þotur en fleiri voru pantaðar ári síðar.

Fyrsta júmbó-þotan sem Delta Air Lines fékk afhenta árið 1970

Fyrsta júmbó-þotan var afhent Detla þann 7. október árið 1970 og þann 25. október var fyrsta farþegaflug Delta með júmbó-þotunni flogið frá Los Angeles til Dallas.

Delta komst fljótlega að því að júmbó-þotan var hreinlega of stór fyrir félagið og var henni skipt út fyrir Lockheed TriStar þotuna þremur árum síðar sem þótti henta betur fyrir félagið.

Júmbó-þotan þjónaði mörgum bandarískum flugfélögum í gegnum tæpa hálfa öld

Delta hafði fimm Boeing 747-100 þotur þegar mest var og skilaði félagið þeim til Boeing árið 1974 en sú sem var lengst í flotanum flaug til ársins 1977.

Delta Air Lines tók aftur upp júmbóþotuflug eftir að félagið sameinaðist rekstri Northwest Airlines árið 2009 sem hafði flogið júmbó-þotunum viðstöðulaust frá því það félag fékk sína fyrstu Boeing 747 afhenta árið 1970.

Júmbó-þotan sem flaug í gær síðasta farþegaflugið fyrir Delta var afhent ný til Northwest árið 1989 en Delta tók við sextán Boeing 747-400 þotum frá Northwest Airlines árið 2009 en byrjaði að losa sig við þær árið 2014.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga