flugfréttir
Skrokkurinn af fyrstu 737 MAX þotu Icelandair komin til Renton
Skrokkurinn kom með lest frá fyrirtækinu Spirit AeroSystems í Kansas
Fyrsta Boeing 737 MAX þotan fyrir Icelandair er nú á leið í samsetningu á næstu dögum en birtar hafa verið myndir af fyrsta skrokknum sem kom til Renton sl. þriðjudag.
Skrokkurinn var ferjaður með lest frá Wichita í Kansas til Renton í
Seattle en það er fyrirtækið Spirit AeroSystems sem framleiddi skrokkinn.
Fimm flugvélaskrokkar komu til Renton þann 19. desember sl., tveir
fyrir Boeing 737 MAX 8 og þrír fyrir Boeing 737-800 en einn af þeim
er fyrir fyrstu 737 MAX þotu Icelandair sem væntanleg er til landsins í febrúar.
Skrokkurinn fer því næst inn í syðri samsetningarsalinn í Renton en tveir salir
eru í gangi þar sem Boeing 737 MAX og Boeing 737NG eru framleiddar á sama
tíma.
Það mun taka aðeins 9 daga að setja saman fyrstu Boeing 737 MAX
þotuna fyrir Icelandair og mun vélin færast í gegnum samsetningarsalinn ásamt sex öðrum
vélum á meðan fjöldi starfsfólks mun koma öllum íhlutum, rafmagnssnúrum,
og innréttingum fyrir.
Því næst verður vélinni flogið frá Renton í málningarvinnu en Boeing hefur nokkra staði á Seattle-svæðinu sem notaðir eru til að mála nýjar flugvélar í litum flugfélaganna.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.