flugfréttir
Tvær Boeing 737 þotur í árekstri við dróna í Argentínu
Báðar flugvélarnar voru af gerðinni Boeing 737-800 og voru þær í aðflugi að sömu flugbrautinni þegar þær urðu fyrir dróna
Tvisvar á rúmum mánuði hefur komið upp atvik þar sem farþegaþota hefur lent í árekstri við dróna á flugvellinum í Buenos Aires í Argentínu.
Í bæði skiptin var um flugvélar frá Aerolineas Argentinas um að ræða en seinna atvikið
kom upp þann 22. desember sl. er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 fékk dróna í hreyfil.
Vélin, sem er frá Aerolineas Argentinas, var að koma frá Santiago í Chile og var vélin í aðflugi
að Jorge Newbery flugvellinum í argentínsku höfuðborginni.
Skemmdirnar á hreyflablöðunum eftir áreksturinn
Yfirvöld hafa ekki staðfest atvikið en að sögn fréttamiðla í Argentínu þá fór dróninn inn í annan
hreyfilinn og olli hann skemmdum á hreyflablöðum.
Seinna skiptið átti sér stað þann 11. nóvember og var einnig um að ræða Boeing 737 þotu
frá Aerolineas Argentinas sem var í aðflugi að sömu flugbraut en sú vél var að koma
frá borginni Trelew í suðurhluta landsins.
Í því tilviki skall dróninn á trjónu vélarinnar, rétt fyrir neðan hliðarframrúðuna flugstjóramegin. Í bæði skiptin
lentu vélarnar heilar á höldnu en skoðun fór fram í báðum tilvikunum auk þess sem skipta þurfti um
hreyflablöð í seinna tilvikinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.