flugfréttir
Stjórnvöld í Túnis banna Emirates að fljúga til landsins
Emirates hefur flogið frá Dubai til Túnisborgar
Emirates hefur neyðst til þess að hætta flugi til Túnis eftir að stjórnvöld í Túnis ákváðu að banna flugfélaginu að fljúga til landsins.
Bannið er tilkomið vegna deilna milli Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Túnis eftir
að Emirates bannaði nokkrum túnískum konum að fara um borð í farþegaþotu félagsins sem
var á leið til Dubai.
Emirates tilkynnti í gær að félagið hefði ákveðið að hætta öllu flugi til Túnis frá og með Jóladag
þar sem að flugmálayfirvöld í Túnis hafa bannað Emirates að fljúga um lofthelgina yfir landinu.
Samgönguráðuneytið í Túnis segir að bannið verði í gildi þar til að Emirates sýnir fram á að félagið
geti framfylgt alþjóðalögum um flugferðir.
Forsetisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna hefur lýst því yfir að stjórnvöld
í landinu virði fullkomnlega réttindi kvenfólks frá Túnis.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.