flugfréttir
Fyrsta flug Sukhoi Superjet 100 með vænglinga
Vænglingarnir fyrir Sukhoi Superjet 100 þotuna kallast Sabre-winglets
Fyrsta Sukhoi Superjet 100 þotan, sem kemur með vænglingum (winglets), hefur flogið sitt fyrsta flug en um er að ræða tilraunaflug sem stóð yfir í 2:42 klukkustundir.
Tilraunaflugmenn framkvæmdu prófanir á stöðugleika vélarinnar með vænglingana og í mismunandi
útfærslum á væng þar sem stillingar á flöpum voru prófaðar.
Sukhoi Superjet 100 þotan mun fá svokallaðan „sabre-winglet“ vænglinga sem mun bæta fluggetu
vélarinnar sérstaklega í flugtaki og í lendingu og þar að auki gera þoturnar allt að 3% sparneytnari.
Talið er að með vænglingunum verði hægt að ná fram sparnaði sem samsvarar 9,5 milljónum króna á hverja Sukhoi
Superjet 100 flugvél á hverju ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.