flugfréttir

Flugskóli Íslands brautskráði 27 flugvirkja

28. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:16

Flugvirkjarnir tuttugu og sjö sem útskrifuðust þann 21. desember síðastliðinn

Þann 21. desember var mikil hátíð þegar nemendur Tækniskólans mættu til útskriftar í Silfurbergi Hörpu en alls brautskráði skólinn 272 nemendur og til þess að hindra fjöldatakamarkanir gesta var ákveðið að skipta athöfninni í tvo hluta.

Fyrst var útskrifað frá framhaldsskólastiginu og svo frá fagháskólastiginu sem er nám á fjórða stigi sbr. Meistaraskólann. Þá voru einnig útskrifaðir nemar úr flugvirkjun hjá Flugskóla Íslands og úr hljóðtækninámi sem er námsleið í samstarfi við Stúdío Sýrlands.

Flugskóli Íslands brautskráði 27 flugvirkja og úr þessum útskriftarárgangi hafa nemendur verið ráðnir til Icelandair, WOW, Flugfélags Íslands, Flugfélagsins Ernir, Landhelgisgæslu Íslands, Air Atlanta og einn er farin að starfa hjá flugrekanda í Sviss.

Almennt er mikil vöntun á flugvirkjum, bæði innanlands sem utan en stækkun flugskýlis Icelandair kallar á fleiri flugvirkja og svo er flugflotinn hjá þeim ört að stækka.

WOW heldur áfram að bæta við sig vélum og svipað ástand er hjá öðrum flugrekendum hérlendis.

Flugskóli Íslands hóf samstarf árið 2011 við Resource Group, Aviation Technical Training division (LRTT Ltd.) sem er viðurkenndur EASA Part 147 þjálfunaraðili í Bretlandi, til náms við útgáfu flugvirkjaréttinda samkvæmt stöðlum EASA Part 66 reglugerðar.

Flugvirkja frá Tækniskólanum má finna víða enda er mikil eftirspurn með þeim.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga