flugfréttir

Kínverjar kaupa Diamond Aircraft

29. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:21

Höfuðstöðvar Diamond Aircraft í London í Kanada

Kínverska fyrirtækið Wanfeng Aviation hefur keypt flugvélaframleiðandann Diamond Aircraft Industries.

Wanfeng Aviation keypti 60% hlut í Diamond Aircraft árið 2016 auk þess sem fyrirtækið tryggði sér rétt til þess að framleiða hina tveggja hreyfla Diamond DA62 flugvél og eins hreyfils flugvélina DA40 í Kína.

Bin Chen, forstjóri Wanfeng Aviation, segir að forysta Diamond Aircraft á markaðnum sé aðdáunarverð sem hafi heillað fyrirtækið mikið og er það ástæða þess að þeir hafi fjárfest í flugvélaframleiðandanum austurríska en Diamond-vélarnar eru bæði framleiddar í Austurríki og í Kanada.

„Undir 25 ára stjórn framkvæmdarstjórans Christian Dries, sem stofnaði Diamond Aircraft, þá hefur fyrirtækið náð að þróa breiða línu af frábærum flugvélum sem eru í miklum metum um allan heim fyrir yfirburða hagkvæmni, frammistöðu, öryggi og nýsköpun í hönnun“, segir Chen.

Bin Chen, nýr forstjóri Diamond Aircraft

„Sökum þessara framúrskarandi árangurs þá höfum við ákveðið að koma Diamond-vélunum á fremsta bekk í heiminum þegar kemur að almannaflugi“, bætir Chen við.

Christian Dries segir að Diamond Aircraft hafi ákveðið að finna réttan samvinnuaðila til framtíðar og tekur hann fram að Bin Chen og Wanfeng Aviation hafi sömu sýn á framtíð flugsins í almannaflugi og sé vilji beggja að Diamond-vélarnar nái enn frekari árangri á næstu árum.

Dries tekur fram að hann sé fullviss um að Diamond Aircraft sé í góðum höndum hjá Wanfeng Aviation en Bin Chen hefur tekið við forstjórastóli hjá Diamond Aircraft af Dries sem mun halda áfram að starfa innan fyrirtækisins sem ráðgjafi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga