flugfréttir

Líkur á að móðurfélag British Airways taka yfir Niki

- Myndi sameinast rekstri Vueling

29. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:17

Flugvélar British Airways og Niki

Svo gæti farið að austurríska flugfélagið Niki muni sameinast spænska lágfargjaldafélaginu Vueling ef viðræður ná fram að ganga.

IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways, Iberia, Vueling og Aer Lingus, er núna í viðræðum vegna yfirtöku á Niki sem var hluti af Air Berlin en Niki hætti öllu flugi þann 14. desember eftir að Lufthansa hætti við frekari tilraunir til yfirtöku.

Lufthansa ætlaði sér að taka yfir rekstur Niki en eftir að í ljós kom að Evrópusambandið hefði sennilega ekki samþykkt kaupin vegna samkeppnislaga ákvað Lufthansa að hætta við áform sín þar sem félagið sá ekki fram á að yfirtakan næði fram að ganga.

Nú hefur IAG tekið við keflinu sem mögulegur kaupaðili að Niki og segja heimildarmenn að móðurfélagið sé í viðræðum um yfirtöku en fyrirtækið er eini aðilinn sem er eftir sem kemur til greina vegna kaupa.

„IAG er síðasti tilboðsaðilinn og samningaviðræður standa núna yfir“, segir aðili sem er kunnugur málinu sem tekur fram að fyrirtækið hafi komið með hæsta boð í Niki en orðrómur er um að upphæðin hlaupi á tæpum 5 milljörðum króna.

Fram kemur að tilboð Thomas Cook sé ekki lengur í myndinni hjá gjaldþrotastjórninni og þá hefur milljarðamæringurinn Niki Lauda, fyrrum kappaksturskappi og stofnandi Niki, lýst því yfir að tilboð hans sé ekki inn í myndinni heldur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga