flugfréttir

Kennsluflugvélin Vulcanair V1.0 komin með vottun frá FAA

29. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:01

Vulcanair V1.0 kennsluflugvélin

Ítalski flugvélaframleiðandinn Vulcanair hefur fengið vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) fyrir kennsluflugvélinni Vulcanair V1.0 sem er nýr flugvélakostur fyrir flugkennslu.

V1.0 er eins hreyfils flugvél með bulluhreyfli en vélin var formlega kynnt á AERO flugsýningunni í Friedrichshafen árið 2014.

V1.0 er fjögurra sæta hávængja flugvél sem kemur með fjögurra strokka 180 hestafla Lycoming-mótor af gerðinni IO-360-M1A.

Vélinni svipar mjög til Cessnu 172 og er V1.0 gert að keppa við þá vél er kemur að afköstum og verði.

Stjórnklefinn í Vulcanair V1.0 kennsluflugvélinni

V1.0 fékk vottun frá evrópskum flugmálayfirvöldum (EASA) í nóvember árið 2013 en núna geta flugskólar í Bandaríkjunum fengið vélina afhenta í kjölfar vottunar frá FAA.

Vélin kostar um 26 milljónir króna og er hún allt að 10 milljónum króna ódýrari en sambærilegar flugvélar sem taka fjóra um borð.

Vulcanair V1.0 var frumsýnd fyrst í á AERO flugsýningunni í Friedrichshafen árið 2014

Eigin þyngd vélarinnar er 2,546 pund og tekur hún 50 gallon af eldsneyti og þá er farflugshraði vélarinnar um 130 hnútar og getur hún flogið upp í 14.000 fet.

Til stendur að afhendingar í Bandaríkjunum hefjist fyrir Sun´n´ Fun flugsýninguna í apríl næsta vor en alls fékk Vulcanair pantanir í sextíu V1.0 flugvélar í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga