flugfréttir
Einkaþota endaði á húsvegg í miklu roki á Möltu
Einkaþotan fór í gegnum grindverk flugvallarins og yfir veg, sem liggur í kringum flugvöllinn, og endaði á húsvegg
Mannlaus einkaþota fauk til í miklu hvassvirði sem gekk yfir eyjuna Möltu í Miðjarðarhafi í vikunni með þeim afleiðingum að hún endaði með nefið á húsvegg.
Atvikið átti sér stað sl. miðvikudagskvöld en einkaþotan, sem er af gerðinni Falcon 7X, var lögð
í stæði á alþjóðaflugvellinum á Möltu í borginni Luqa.
Hjólastell einkaþotunnar voru skorðuð af með klossum en þrátt fyrir það var vindhraðinn það mikill
að hvassviðrið náði að ýta vélinni af stað og hélt hún áfram í gegnum grindverk vallarins, yfir veg sem liggur í kringum flugvallarsvæðið, og endaði einkaþotan með nefið í gegnum vegg á múrsteinsbyggingu.
Einkaþotan er af gerðinni Dassault Falcon 7X
Enginn var í byggingunni er atvikið átti sér stað og sakað engann en vélin varð fyrir töluverðum skemmdum.
Einkaþotan, sem er skráð á Bermúda-eyjum, er í eigu lávarðsins Michael Ashcroft sem er breskur stjórnmálamaður og auðkýfingur en hann er einn af ríkustu mönnum Bretlands og var eitt sinn háttsettur innan
Íhaldsflokksins.
Flugmálayfirvöld á Möltu og stjórn flugvallarins í Luqa rannsaka nú atvikið en vélin var í stæði
á Apron 4 sem er athafnarsvæði skammt frá flugskýli Lufthansa Technik.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.