flugfréttir
Boeing-þota snéri við vegna lítils fugls í stjórnklefanum
- Flugmennirnir heyrðu fuglatíst skömmu eftir flugtak
Leitað var hátt og lágt að fuglinum á flugvellinum í Detroit og fannst hann loksins
Farþegaþota frá Delta Air Lines af gerðinni Boeing 717 þurfti að snúa við á dögunum til Detroit eftir að upp komst um lítinn laumufarþega í stjórnklefa vélarinnar sem reyndist vera fugl.
Í yfirlýsingu frá Delta kemur fram að vélin hafi verið komin í loftið áleiðis til Atlanta sl. laugardag þegar flugmenn
vélarinnar komu auga á fuglinn og hafi þeir ákveðið að snúa við.
Fuglsins var fyrst vart fyrir brottför en starfsfólk á flugvellinum var kallað út um borð í vélina
til að reyna handsama hann en fuglinn fannst ekki og var á endanum talið að hann hefði flogið út úr vélinni og væri ekki þar lengur.
Flugstjórinn hafði ávarpað farþega í kallkerfið og sagt í gríni að ef þeir myndu heyra fuglatíst í stjórnklefanum á leiðinni þá þyrftu þeir að snúa við til Detroit og bað farþega að búa sig undir það.
Vélin var ekki búin að vera lengi í loftinu þegar flugmennirnir heyrðu fuglatíst einhverstaðar
í klefanum og var því ákveðið að snúa við og lenti vélin aftur í Detroit skömmu síðar.
Talið er að fuglinn hafi flogið inn í vélina á flugvellinum á sama tíma og farþegar voru að fara um borð.
Fram kemur að flugstjórinn hafi ákveðið að snúa við til að fyrirbyggja að fuglinn myndi hafa truflandi áhrif á
störf þeirra í stjórnklefanum sem gæti skapað hættu.
Eftir að vélin lenti tókst áhöfninni, með aðstoð frá starfsfólki flugvallarins, að handsama fuglinn
og koma honum frá borði.
Fuglinn flaug því næst frelsinu feginn út í loftið og það sama má segja um flugvélina sem tók
sér þó aðeins lengri undirbúningstíma fyrir flugtak.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.