flugfréttir
Fyrsta flugfélag ársins 2018 til að hætta starfsemi
- FlyViking náði ekki eins árs aldri
Bombardier Dash-8 flugvél FlyViking á flugvellinum í Þrándheimi
Fyrsta flugfélag ársins 208 til að hætta starfsemi sinni verður norska flugfélagið FlyViking en félagið mun leggja árar í bát þann 12. janúar næstkomandi.
Flugfélagið náði ekki að verða eins árs gamalt en það hóf starfsemi sína þann 27. mars 2017
en fjárhagsvandi fór fljótt að gera vart við sig og þá reyndist samkeppnin mjög hörð frá
norska flugfélaginu Widerøe.
Aðeins eru 9 mánuðir síðan að FlyViking byrjaði að fljúga á milli Tromsø, Hammerfest og Bodø.
Félagið var strax farið að huga að enn frekari stækkun eftir að hafa byrjað flugreksturinn með tvær
flugvélar af gerðinni Bombardier Dash-8 en seinkun á þriðju flugvélinni setti strik í reikninginn og þurfti að fresta flugi til fjórða
áfangastaðarins sem átti að vera Svolvær.
FlyViking er dótturfélag Viking Air Norway sem er í eigu mismunandi fjárfesta en alls var búið
að setja 1,6 milljarð króna í rekstur FlyViking.
Stjórn FlyViking ákvað þann 20. desember sl. að rekstri FlyViking yrði hætt þann 12. janúar og hefur
félagið beðið þá farþega, sem hafa keypt fargjald með félaginu, afsökunar og fá þeir fargjöldin endurgreidd.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.