flugfréttir
Niki verður breytt í nýtt flugfélag
- IAG staðfestir kaupin á flugfélaginu austurríska
IAG, móðurfélag British Airways og Iberia, hefur keypt flugfélagið Niki sem var hluti að Air Berlin
IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur staðfest að flugfélagasamsteypan hafi keypt austurríska flugfélagið Niki.
Þá hefur IAG einnig tilkynnt að skipt verði um nafn á flugfélaginu og nafnið Niki mun
víkja fyrir nýju merki sem kynnt verður síðar.
Kaupverðið er um 2,4 milljarðar króna en IAG ætlar sér einnig að setja um tvo milljarða
í reksturinn á nýja félaginu.
Þá kemur einnig fram að um 740 starfsmenn hjá Niki verða endurráðnir til að sjá um reksturinn á nýja flugfélaginu.
„Niki var arðbærasti hlutinn af Air Berlin og það að félagið hafi einblínt á sólarlandaferðir
er eitthvað sem passar mjög vel við rekstur Vueling“, segir Willie Walsh, framkvæmdarstjóri
IAG en félagið verður systurfélag spænska lágfargjaldafélagsins Vueling.
„Með kaupunum mun Vueling efla stöðu sína í Austurríki, Þýskalandi og í Sviss og bjóða
viðskiptavinum upp á enn fleiri kosti í ferðalögum sínum“, segir Walsh.
Walsh segir að nánari upplýsingar um hið nýja flugfélag og nýja nafn þess verða birtar á næstunni
þegar réttur tími verður til þess.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.